Svalalokanir - Létt og glæsileg lausn

Við bjóðum upp á nútímalegar svalalokanir sem sameina fallega hönnun, sveigjanleika og vandaða virkni. Lausnin okkar er hönnuð til að falla fullkomlega að byggingunni – án þess að þyngja útlitið.

Svalalokanirnar okkar eru byggðar upp þannig að neðri hluti svalanna er úr gleri, en lokunin sjálf er sett ofan á. Þessi uppbygging þýðir að:

  • Engir sýnilegir staurar trufla útsýnið

  • Hönnunin er létt og minimalísk

  • Hámarks birtuflæði og opið rými

Mikilvægt er að hugsað sé til þess möguleika í byrjun verks, þar sem gera þarf ráð fyrir svalalokun í útreikningum á neðri parti handriðs. Verkfræðingar Glerlausna reikna út hversu þykkt glerið þarf að vera og hvernig festa skal handlista þannig að heildar lausnin uppfylli íslenskar aðstæður.

Sveigjanleg lausn – hagkvæm fyrir seljendur og kaupendur

Lausnin okkar er ekki bara glæsilegt, heldur einnig hentug fyrir seljendur og kaupendur

  • Hægt er að setja upp neðri glerhluta svalanna við afhendingu

  • Engin þörf á að klára svalalokun strax ef eigandi sér ekki þörf á því

  • Kaupendur geta valið að bæta við efri lokun síðar, eftir eigin þörfum

  • Dýrmætt fyrir framtíðar kaupendur að hafa möguleika á að bæta við lokun á einfaldan hátt

Next
Next

GPR1